01.05.2009 16:29:52 / canine
hæ hæ allar,
vonandi gengur vel að læra fyrir prófin. ég var að pæla hvort einhver ykkar sé svo klára að geta tekið mig útaf skvísu_listanum hérna vinstramegin? ég er búin að prufa þetta sjálf en ekkert virkar

hahah...
......en annars gangi ykkur vel að læra fyrir prófin.
og til hamingju með litlu skvísuna Sigga mín
kveðja Anna María
»
02.03.2009 19:08:16 / Hrafnhildur Ýr
Sko bara af því að ég er í hálfgerðu fæðingarorlofi

og á vaktinni núna þá ákvað ég að skrifa smá blogg

líka útaf því að við erum svo OFUR duglegar að skrifa hérna inni! hahah
En bara ef þið voruð ekki búnar að fatta það, þá erum við að fara til DK ekki á morgun, ekki hinn heldur HINN!!! Yeessss....
Er orðin ppppíiiinnnnu spennt verð ég að segja
Spurning um að kíkja inná H&M síðuna
»
21.01.2009 21:13:28 / canine
Jæja , þá er komið að partyi , Steina nemi á fimmta ári er að fara halda gleðskap, tilefnið er svo sem ekkert endilega mikið nema bara það að nú er að koma febrúar og þið vitið mars ,apríl og mai, tíminn flýgur áfram sko, og þar sem allir eru önnum kafnir næstu 2-4 mánuðina í prófum eða í undirbúningi prófa þá er um að gera að skemmta sér soldið saman áður en allt skólastússfjörið byrjar , allir eru boðnir sem eru þarna í skólanum við tannlæknadeild enda held ég að Steina búi í íþróttahöll, partyið er nk föstudag 23-01-09 bara um svona kl 21:00 og heimilisfangið hennar er hér á miða hjá mér ,( vil nú ekki vera að setja það hér á internetið ) , ég held þetta sé bara rosa stuð og enn skemmtilegra ef við komust allar, (ég hef nú heyrt frá ákv aðilum að tanntækninemarnir eru víst ekki svo duglegar að mæta á viðburði skólans ,hóst ,,hóst), en endilega takið frá daginn hver veit nema að við eigum bara eftir að skemmta okkur vel svei mér þá , ekki vera feimnar ,komum saman þar er gaman, ok sjáumst í skólanum kv Rakel Jóna. (róna)
»
13.01.2009 19:04:46 / canine
Hvað ætlið þið að koma með í saumó á morgun til hennar Siggu?
Ég ætla að prufa nýjan brauðrétt, sá uppskrift á netinu og er forvitin að vita hvernig útkoman verður
Kveðja Mæja 
»
23.12.2008 21:29:50 / canine
Jæja Girls , nú eru bara jólin að detta inn , hjá mér er búið að vera rosa kosy bara ekkert stress þannig séð ,kannski pínu í dag svona síðasta dag fyrir jól en annars er það bara búið að vera spilakvöld hjá okkur Bjössa og hvítt eða Öl eða bara coke á kvöldin við Bjössi erum orðnir snillar í scrabble en hann samt betri en ég ,svo á morgun fáum við tengdó í mat sem er ágæt þá er ég allavega ekki með hana í símanum allt kvöldið hehe djók en ég óska ykkur gleðilegra jóla og þakka ykkur samfylgdina á árinu sem er að líða og vona að næsta ár með ykkur verði jafn gott og síðasta ár, mér þykir vænt um ykkar allar, kær kveðja Rakel jóna Hreiðarsd.
»
13.12.2008 19:54:38 / canine
Sælar.
Takk fyrir kvöldið skvísur

Ég setti inn nokkrar myndir frá kvöldinu í "Hittingur hjá Rakel" albúm, vona að þið njótið

Hafið það svo ótrúlega gott um hátíðarnar, sjáumst svo kátar eftir áramót

Ykkar Sigga.
»
10.12.2008 14:25:35 / canine
Jæja þá fer þetta að styttast í annan endann hjá okkur fjarnámspíum bara 2 dagar og svo himneskt jólafrí
Ég var beðin um að koma smá tilkynningu á framfæri og hún er sú að Rakel greyið var svo óheppin að næla sér í þessa líka yndislegu flensu á mánudaginn
ég heyrði í henni áðan og hún hljómaði ekki vel blessunin
Hún hefur að sjálfsögðu áhyggjur af föstudagskvöldinu og ætlar að sjá hvernig hún verður á föstudeginum, þannig að þið hafið það bak við eyrað að kannski verðum við að fresta þessu en þetta er samt EKKI off fyrr en við erum búnar að frá Rakel á föstudaginn og hún enn lasin.
Þannig að við vonum bara það besta og Rakel mín..take care now..you hear!
Annars gerum við þetta bara síðar þegar allar komast.
Jæja það er best að halda áfram að læra fyrir god damn TMS-ið

og helvítis skráninguna, skil ekki af hverju þetta próf er í tveimur hlutum..bara hallærislegt!
Bless í bili.
Ásta.
»
04.12.2008 18:35:18 / canine
ÞÁ ERU VIÐ AÐ VERÐA BÚNAR(nema þær sem eru í fjarnámi auðvitað) EN Á MORGUN ER SÍÐASTA PRÓFIÐ OKKAR SAMAN ÞANNIG AÐ ÉG MINNI Á PARTYPENINGINN Á MORGUN OG LÁTA MIG FÁ HANN FYRIR PRÓF ÞAÐ ERU 1.500KR , ÁSTA PÁSTA ÆTTLAR AÐ AÐSTOÐA MIG VIÐ UNDIRBÚNINGINN SVO EF EITTHVAÐ ER VONT SEM ER Á BORÐUM ÞEGAR ÞIÐ KOMIÐ ÞÁ ER ÞAÐ ÁSTU AÐ KENNA OK.
Svo var ég að hugsa ,kannski getum við haft svona litlu jól , allir koma með pakka sem má bara kosta 500kr og svo gefum við næsta manni pakkann , nei bara hugmynd ,þið eru svo lélegar að koma með hugmyndir en auðvitað eru allir bara niðursokknir í prófin núna , nema ég því ég kann þetta allt ( DJÓK).
SVO VAR ÉG AÐ TALA VIÐ SYLLU Í DAG Á FACEBOOK EKKI SAMT Á OPNUM VEF HELDUR BARA SVONA PERSONAL MESSAGE OG VITI MENN HÚN BARA SAGÐI MÉR EINKUNNINA MÍNA ÚR PRÓFINU Á MÁNUD SÍÐASTA ALLVEG Í ÓSPURÐUM FRÉTTUM , FRÁBÆR HÚN , SVO SAGÐI HÚN AÐ ÞIÐ MÆTTU HAFA SAMBAND VIÐ HANA MEÐ TÖLVUPÓST EÐA Á FACEBOOKINU OG VITA YKKAR EINKUNN,
OK GANGI YKKUR VEL Á MORGUN KV RAKEL JÓJÓ
»
02.12.2008 01:53:19 / canine
»
26.11.2008 18:38:01 / canine
Sælar litlu gellsunar mínar, heyrðu ég er eiithvað búin að vera að hugsa þetta með 12 des,partyið góða , vilja allir panta bara mat? og er þá eitthvað núðludæmi sem allir eru að hugsa?
Ég er líka allveg til í að hafa bara allt tilbúið þegar allir koma , ef við myndum t,d láta þetta byrja kl 18:00 sem mér finnst mjög góður tími þá finnst mér fínt að við færum bara að borða fljótt , ég er nebbla ekki í prófi þennan dag né í skólanum þannig að ég get allveg (auðvitað með aðstoð Bjössa míns) tekið að mér að elda og gera allt voða fínt , mér datt í hug að gott væri að fá taco eða eitthvað þannig ( sýnist það vera vinsælt í saumó) , ef allir myndu bara mæta með smá aur núna í eitthvað prófið og láta mig fá þá er ég til í að fara í búð og verlsa og elda og svona ,veit reyndar ekki neina verðhugmynd ,kannski einhversstaðar á milli 500 eða 1000 kr ,eða hvað haldið þið?? , svo bara þegar allir mæta þá er bara tilbúið taco hlaðborð ,dorritos ,dýfa og læti eða hvað er þetta kannski bara ekkert góð hugmynd ???????? svo vil ég endilega hafa eitthvað skemmtilegt prógram í fjörinu, ég ætla nú samt ekkert að fara að taka moniku í friends á þetta og hafa stanslausan spurningarleik allt kvöldið en ef þið kunnið einhverja skemmtilega partyleiki ekki of flókna sko þá er alltaf gaman að skoða það??? segiðið eitthvað um þetta girls ,koma með comment ..ok kv Rakel jóna jójó
»
20.11.2008 22:29:07 / Hrafnhildur Ýr
Sælar..

Hvað segiði? Allar að drukkna í námsgleðinni?
Eru einhverjar í stuði fyrir Litlu jól á morgun? Verður pottþétt gaman...
Litlir pakkar, jólaöl, piparkökur og eitthvað meira

Stay in touch...........
»
10.11.2008 20:16:14 / canine
Það er bara ekkert í gangi með þessa síðu hjá okkur...eigum við eitthvað að ræða það?
Af mér er allavega allt ágætt svo sem að frétta, fyrir utan það að Birna er orðin veik again
en þá er gott að eiga "góða" barnsfeður hahahaha jújú.
Ég fór ekki með Rakel á Palla á Nasa á laugardagskvöldið en vá hvað mig langaði og ég var næstum því búin að fara en kreppubuddan stöðvaði mig sem er auðvitað gott núna en var fúlt þá. Hvað er annars að frétta af ykkur???
Ég og Pála förum í heimsókn á morgun þannig að við sjáumst bara á miðvikudaginn
Jæja dýralífsþátturinn minn er að byrja á RÚV þannig að ég ætla að setja mig í stellingar fyrir pöddurnar

Ykkar
Ásta Pást
By the way ég held að maður verði pínu klikk á því að hanga inni heilan dag og gera ekkert!
»
22.10.2008 16:39:38 / canine
Sælar stúlkur mínar.

Ég ætla að halda saumó miðvikudaginn 5.nóvember.
Ætla ekki allar að mæta?
ps. bætti við nokkrum nýjum myndum

kveðja Rut
»
Síður:
1 2 3 4